PRENTÚTGÁFA
Sportferðir

Fjallaskíðaferðir - Catskiing - Catboarding

Sportferðir ásamt Naturalis munu bjóða uppá Fjallaskíðaferðir á Tröllaskaga í vetur. Catskiing og Catboarding eru ferðir fyrir skíða- og snjóbrettafólk útfyrir heðbundin skíðasvæði.  Ferðirnar eru farnar á mörg ný og spennandi svæði sem ekki hafa verið aðgengileg fyrir skíða- og brettafólk með auðveldum hætti. Faratækið er sérútbúinn Snjóbíll - Snjóköttur - Snjótroðari, sem tekur 10 farþega plús ökumann og fjallaskíðaleiðsögumann.

Allar frekari upplýsingar eru í síma 899 8000 eða tölvupósti sporttours@sporttours.is
Lesa meira

Gisting hjá Sportferðum
Ytri-Vík er fallegur og friðsæll staður við sjávarsíðuna vestan megin í Eyjafirðinum milli Akureyrar og Dalvíkur. Við bjóðum upp á gistingu í tveggja til sextán manna frístundahúsum allt árið um kring. Húsin eru vel útbúin og öll með heitum potti á verönd. Ýmis afþreying er í boði s.s. vélsleðaferðir, snjótroðaraferðir, skíðaferðir, sjóstangaveiði, strandveiði, silungsveiði, berjatínsla, gönguleiðir, rjúpnaveiðiland, hestaferðir og margt fleira skemmtilegt.

Upplýsingar síma 899 8000 eða tölvupósti sporttours@sporttours.is
Lesa meira

Vélsleðaferðir á Norðurlandi
Vélsleðaferðir eru í boði hjá Sportferðum í vetur fyrir einstaklinga og smærri hópa.  Ferðirnar eru frá einni klst. og einnig gerum við tilboð í dagsferðir og lengri hálendisferðir.

Upplýsingar í síma 899 8000 og fyrirspurnir sendast á sporttours@sporttours.is
Lesa meira

Hvataferðir, Óvissuferðir, Vinnuferðir og Viðburðir
Vinsælustu ferðirnar eru þegar fyrirtæki eða félög eða bara fjölskyldur og vinahópar vilja þétta hópinn og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi. Afþreyingin sem er í boði núna eru Vélsleðaferðir, Hestaferðir, Paintball, LazerTag, Sjóstangaveiði, Köfun og Óvissuferðir.   Nauðsynlegur þáttur í ferðunum er svo heimsókn í Bruggsmiðju Kalda á Árskógssandi.  Við gerum tilboð í hverja ferð fyrir sig.  Við sjáum um skipulagningu, afþreyingu, akstur og veitingar ef óskað er og sjáum til að ferðin verði ánægjuleg og örugg í alla staði.  Frekari upplýsingar veitir Marinó í síma 894-2967 og einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið sporttours@sporttours.is

Góða skemmtun :-)
Lesa meira

Sportferðir ehf. Ferðaskrifstofa | sími: + 354 894 2967 og Gisting + 354 899 8000 |  sporttours@sporttours.is
Sportferðir ehf. Ferðaskrifstofa | sími: + 354 894 2967 og Gisting + 354 899 8000 |  sporttours@sporttours.is