|
|
Sportferðir 
Gisting hjá Sportferðum  | Ytri-Vík er fallegur og friðsæll staður við sjávarsíðuna vestan megin í Eyjafirðinum milli Akureyrar og Dalvíkur. Við bjóðum upp á gistingu í tveggja til sextán manna frístundahúsum allt árið um kring. Húsin eru vel útbúin og öll með heitum potti á verönd. Ýmis afþreying er í boði s.s. vélsleðaferðir, snjótroðaraferðir, skíðaferðir, sjóstangaveiði, strandveiði, silungsveiði, berjatínsla, gönguleiðir, rjúpnaveiðiland, hestaferðir og margt fleira skemmtilegt.
Upplýsingar síma 899 8000 eða tölvupósti sporttours@sporttours.is Lesa meira
|
 Hvataferðir, Óvissuferðir, Vinnuferðir og Viðburðir  | Vinsælustu ferðirnar eru þegar fyrirtæki eða félög eða bara fjölskyldur og vinahópar vilja þétta hópinn og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi. Afþreyingin sem er í boði núna eru Vélsleðaferðir, Hestaferðir, Paintball, LazerTag, Sjóstangaveiði, Köfun og Óvissuferðir. Nauðsynlegur þáttur í ferðunum er svo heimsókn í Bruggsmiðju Kalda á Árskógssandi. Við gerum tilboð í hverja ferð fyrir sig. Við sjáum um skipulagningu, afþreyingu, akstur og veitingar ef óskað er og sjáum til að ferðin verði ánægjuleg og örugg í alla staði. Frekari upplýsingar veitir Marinó í síma 894-2967 og einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið sporttours@sporttours.is
Góða skemmtun :-) Lesa meira
|
|
|